gggggrrrrrrrr
Þetta er einn af þessum dögum……….sem allt vill ekki vera vinur minn. Talvan mín vill ekki vera á netinu, Prins ákvað að gleyma öllu sem ég hef kennt honum og pissaði á mitt gólfið í stað þess að fara á blaðið sitt, ég ákvað að fá mér steikt egg í hádegismat og missti eggin í gólfin og það er ekkert leiðinlegra en að þrífa upp egg. Og bara til að kórona allt saman þá gleymdi ég að taka bólgueyðandi lyfin mín og það er kalt svo að ég er með verki í brákaða bakinu og í gigtinni minni. Uuuuurrrrr ef ég þyrfti ekki að fara að vinna á eftir þá myndi ég fara upp í rúm og bíða eftir næsta degi.
ný talva
ok ég fékk mér nýja fartölvu fyrir u.þ.b. mánuði síðan og ég er búin að fara með hana tvisvar í viðgerð svo að núna er ég á gömlu vélinni þar til að nýja handónýta talvan kemur úr viðgerð. Sem er í lagi nema hvað gamla mín er svoldið mikið hægvirk reyndar svo hægvirk að hún actually fer afturábak stundum. En tæplega 4 ára fartölva og hún virkar betur en þtessi nýja sem átti að vera betri en niðurskorið brauð. Þannig að ég er svoldið skúffuð svona fyrir utan það að ég er með brákað bak eftir að hafa dottið með mjöðmina á klósettið þegar ég rann á bleytu þegar ég var að reyna að þvo littlu elskunni minni(s.s. Prins the dog u know) Þannig að núna er ég mest pirruð á thunder verkjalyfjum sem eru ekkert að virka eeeennn það góða við það að littla sæta ég er helvíti góð í því að rífast þegar ég finn til svo að núna er ég út um allt að kvarta yfir öllu sem ég hef verið að fresta vegna þess að ég hef verið svo lítil í mér. Þannig að there is a silver lining on every gray cloud maður þarf bara að leita stundum svoldið vel
kv
gunnsa með brákað bak
Vill vera barn aftur
Ég vil róla mér eins hátt og ég kemst, ég vil labba í rigningunni með tunguna úti, ég vill verða brjálæðislega ástfangin af bara einhverjum
draumfarir
ok ég veit af hverju ég er einhleyp…………..ekki af því að ég hitti engan sem er verðugur mín eða vegna þess að ég á erfitt með að treysta það er af því að draumfarirnar mínar eru svo mikið betri en raunveruleikinn gæti nokkurn tíma verið.
Mig dreymdi að ég væri í skóla og ég var á bókasafninu að skoða hinar ýmsu bækur og ég var með Soffíu og við vorum að tala um hvernig ég hefði nú verið með mér yngri mönnum. Ég tek eftir því að viss frægur leikari er einnig á bókasafninu en þar sem ég er geðveikt “cool” þá var ég að látast eins og ég hefði ekki tekið eftir honum. Svo sný ég mér frá Soffíu þá er pikkað í bakið á mér og þar sem ég var í góðu skapi þá segji ég í djóki hoppaðu á bak og mér til mikillar furðu þá hoppaði Soffía á bakið á mér að minnsta kosti hélt ég það þangað til að ég fann lyktina af karlmanns ilmvatni. Ég hendi manneskjunni af mér og þá er það þessi vissi leikari sem ber eftirnafnið Depp. Ég byrja á því að roðna og þá spyr hann mig hvort að ég reyni svona við alla gæja og ég fer að hlæja og segji það varst þú sem stökkst á mig. Nema hvað svo byrjum við að tala saman við tölum saman um allt og ekkert svo þegar Soffía var orðin virkilega óþolinmóð að bíða eftir mér þá tekur hann biblíu rífur úr henni blaðsíðu skrifa símanúmerið sitt inn í blaðið og býr svo til blóm úr blaðinu og réttir mér. Ég er ekki komin út í bíl þegar ég hringi í hann og spyr hvort að hann vilji hittast seinna og hann játaði því. Við hittumst á kaffihúsi sem endaði heima hjá mér með fullt af kynlífi. Þannig að núna er ég búin með Depp og Manson(the singer) og allt í draumum mínum. Hvað gæti verið betra?????
Ég er alveg búin að sjá þetta þegar ég sef þá er ég drusla fræga fólksins og ég get ekki beðið eftir að fá að taka Angelinu og Edward Norton
proud mama
jæja þá er komið að því ég er að byrja að blogga aftur enda mikið búið að ske. Ég byrjaði júlímánuð á því að fá mér hvolp sem ég nefndi Prins af því að hann er prinsinn minn. Hann er blanda af border collie,labrador og collie sem sagt mega gáfaður og hann er strax búinn að læra að setjast og sækja og gefa hann er ekki alveg búinn að læra að pissa úti en hann pissar bara á sjúkrahúss undirleggið sem ég er með á gólfinu. En nr 2 gerir hann bara úti. Hann er sætastur í geiminum en ahemmm er það ekki málið er manns eigið ekki alltaf sætast og best?? Og þar sem ég hef alltaf verið með svo stórar fullyrðingar um hvernig ég ætlaði að vera þegar ég loksins myndi nú fá mér hund…………………ég er búin að brjóta allar þær reglur. Hann sefur í rúminu hjá mér ég sem ætlaði að láta hundinn minn sofa í búri. Hann fær að vera með mér upp í sófa en ég ætlaði bara að vera með mottu á gólfinu fyrir hann. Það er bara svo gott að hafa einhvern til að knúsa svona á þessum síðustu og verstu tímum enda er hann kelidýr dauðanns þannig að bara það að koma einhvers staðar við mig þá er hann glaður hvort sem það er í fanginu á mér eða bara liggjandi á milli fótanna á mér á meðan ég er í tölvunni.
stupid people
ok ég var að horfa á worlds most amazing videos(já mér leiddist) en ég komst að því að það er alveg rosalegt magn af vitlausu fólki til. En það sem ég sá áðan það sló allt út það var þyrla sem hrapar niður á mannmergð og hvað gerir fólkið???? það hleypur í áttina að þyrlunni. Ég hefði hlaupið í hina áttina ég meina spaðarnir á fullu og allt það. Sérstaklega þegar þetta var fagnaður í boði hersins fullt af hermönnum á svæðinu til að redda málunum.
Það sem fór mest fyrir brjóstið á mér var móðir sem greip í u.þ.b. 10 ára gamlann son sinn og hljóp beint að þyrlunni til að sjá hvort að mennirnir sem voru í þyrlunni slasaðir eða dauðir.
Face it its a fact all the stupid people are breeding
partyplön
Ég er að hugsa um að halda party til að fagna þess að ég á alveg ómerkilegt afmæli næsta 17 júní. Það er komin tími til að fagna þess að ég er orðin betri af þunglyndinu,kvíðanum,áfallaröskuninni og geðhvörfunum, já ég veit að þetta er alveg sorgleg upptalning. Ennnnnnn ég er betri sko svo hence the party sko. Eina vandamálið er að ég virðist vera hætt að kunna að tala ennnnn ég hef alltaf talað gunnsuspeak þannig að þeir sem þekkja mig og elska kunna að skilja mig.
Nema hvað partýplön?????????? Hvað gerir maður þegar manni langar til að halda partý??? Það þarf að hugsa um hverjum og hvernig á að bjóða, á ég að bjóða með boðskorti og verða geðveikt formleg (þá kemur vandamálið með það að vita hvar fólk á heima er yfirleitt bara með gsm nr sko) Þá dettur mér í hug að senda bara eitt sætt sms en ég hef reynt það áður oooooog það gekk alveg minna vel reyndar þá endaði ég með held ég þrjú eða fjögur sms á mann þar sem ég gleymdi að taka fram hvar ég ætti heima, kl hvað og hvenær. Kannski ætti ég að fara að reyna að semja sms fyrirfram ekki það ég gerði það nú líka síðast. En kannski að ég læri af reynslunni vandamálið er bara að síðasta partý sem ég hélt var………………..fyrir 4 árum síðan svo ég er eiginlega bara búin að gleyma reynslunni lol ég er að verða elliær hérna. Svo er málið mig langar til að hafa jello skot svona í boði húsins en vinkona mín var að benda mér á það að það væri sniðugara að hafa bollu svona sérstaklega þar sem ég er alveg skelfileg þegar ég tek jello skot (sérstaklega þar sem maður finnur ekkert bragð af áfenginu) á ég til að missa mig svoldið í gleðinni. Þannig að kannski er bolla rétta leiðinn til að fara reyndar voru Alba og Tinna með svona vatnsmelónu sem þær fylltu af vodka það var sniðugt…………………kannski að ég hringi í Ölbu hún kann kannski einhverjar sniðugar uppskriftir handa mér. Allt þetta plan og það eru 16 dagar þar til að stóri dagurinn rennur upp.
